![Locobase-Itch-Relief-Cool-Mousse](https://locobase.com/cdn-cgi/image/width=600,format=auto/app/uploads/sites/9/2023/02/Locobase-Itch-Relief-Cool-Mousse.png)
Locobase Itch Relief Coolmousse
Kælandi froða fyrir þurrk, ertingu og kláða í húð
100 ml
Locobase Itch Relief Coolmousse er kælandi froða sem er sérstaklega þróuð til að slá hratt á ertingu og kláða í húð. Froðan inniheldur mild innihaldsefni eins og Aloe Barbadensis þykkni og glýserín sem róar húðina og veitir henni raka.
Kláðastillandi froðan má fara á allan líkamann, líka andlit og hentar fyrir alla fjölskylduna, jafnvel börn frá 3 mánaða aldri. Froðuna má nota eins oft og þörf er á.
Áferðin er létt, froðan frásogast hratt inn í húðina og klístrast ekki.
- Veitir strax kælandi og róandi áhrif á húðina
- Frásogast hratt, klístrast ekki
- Hentar allri fjölskyldunni, líka börnum
- Ilmefnalaust
- Vegan
- Virkni prófuð af húðsjúkdómalæknum