Fara í efni

Locobase Renew

Hyrnisleysandi krem. Fjarlægir þykka, hreistraða og harða húð.

100 g, 490 g. Fituinnihald: 49%

Locobase Renew er hyrnisleysandi krem sem fjarlægir þykka, harða og hreistraða húð. Gerir húðina dásamlega mjúka. Kremið inniheldur própýlenglýkól sem bindur vatn og hjálpar húðinni að halda raka, einnig AHA-mjólkursýru sem hefur húðslípandi áhrif – ysta lag húðarinnar er fjarlægt.

Locobase Renew hjálpar til við að fjarlægja þurra, harða, hreistraða og grófa húð á útsettum svæðum eins og brjósti, baki, handleggju, fótum, hælum, iljum, lófum og/eða hársverði.

  • Notað gegn hreistraðri húð og mýkjandi meðferð við þykkri, þurri og harðri húð.
  • Notað við hreisturhúð þegar þú hefur áður fengið greiningu og meðferð hjá lækni og þarfnast frekari meðferðar.